Saturday, 08 August, 2026г.
russian english deutsch french spanish portuguese czech greek georgian chinese japanese korean indonesian turkish thai uzbek

пример: покупка автомобиля в Запорожье

 

Red Hot Chili Peppers | Sveppi og Auddi

Red Hot Chili Peppers | Sveppi og AuddiУ вашего броузера проблема в совместимости с HTML5
Sveppi og Auddi fóru í sjóðheitan spurningaleik í tilefni af tónleikum Red Hot Chili Peppers á Íslandi! Hefðuð þið getað svarað þessum spurningum? MIÐASALA Á TIX.IS/RHCP Um tónleikana: Red Hot Chili Peppers eru ein af farsælustu rokkböndum sögunnar og hefur selt yfir 60 milljón plötur (þeirra á meðal eru fimm platínumplötur). Meðlimir eru Anthony Kiedis (söngur), Flea (bassi), Chad Smith (trommur), og Josh Klinghoffer (gítar), og undir flaggi sveitarinnar hafa þeir unnið sex Grammy-verðlaun; fyrir bestu rokkplötuna (Stadium Arcadum), besta tónlistarflutning hljómsveitar („Dani California“), besta rokklagið („Scar Tissue“) og besta rokkflutning með söng („Give It Away“). Íslenska sveitin FUFANU hitar upp fyrir Red Hot Chili Peppers í Nýju-Höllinni 31. júlí. Meðlimir RHCP kynntu sér íslensku tónlistarsenuna og báðu svo sjálfir sérstaklega um Fufanu, sem tóku beiðninni fagnandi. Þegar ellefta breiðskífa sveitarinnar, The Getaway, kom út fór hún rakleiðis á topp vinsældarlista víða um heim. Drengirnir, sem fyrir fjórum árum voru innlimaðir í Frægðarhöll rokksins, Rock and Roll Hall of Fame, leyfðu aðdáendum að bíða í ofvæni eftir plötunni og þegar hún kom fyrst út skaust hún beint á toppinn á sölulista Billboard yfir breiðskífur og í annað sæti á Billboard Top 200. The Gateway er 10. plata Grammy-verðlaunahafanna og sú þriðja sem nær öðru sæti á Top 200 listanum. Platan náði fyrsta sæti á sölulistum í Ástralíu, Belgíu, Hollandi og Nýja-Sjálandi og öðru sæti í Bretlandi og Þýskalandi. The Getaway hefur að auki hlotið mikið lof gagnrýnenda.
Мой аккаунт