Titillag fyrstu sóloplötu Sólmundur Friðrikssonar sem var gefin út 29.09.2017
SÖNGUR VONAR
Yfir öll heimsins lönd
held ég mína braut,
― linandi mannsins þraut.
Styrk og trú með mér ber,
mátt til handa þeim
er byggja þennan heim.
Hvar sem er eymd og böl
og óvægin er veröldin svöl,
með útrétta hjálparhönd
ég fer um öll veraldar lönd,
― að lina neyð og kvöl.
Lauga með birtu’ og yl
beygða’ og þjáða sál,
― tendra þar vonarbál
Hverjum sem þunga ber
þolgóð bendi ég
að líta fram á veg.
Þó allt virðist vera svart
og lífið sé að leika þig hart,
þá taktu á móti mér
og leyf mér að liðsinna þér,
― þá verður aftur bjart.
Hann kreisti hönd mína veikum mætti, horfði í augu mér og sagði innilega: ― Ég vil að þú vitir að ég er ekki búinn að missa vonina! Þessi síðustu orð pabba míns endurómuðu í huga mér eftir andlát hans og voru mér mikil huggun í sorginni; að vita að hann hefði haldið voninni til hinstu stundar. Nokkrum árum síðar greindist fyrrverandi nemandi minn, Guðbjört Lóa Sæmundsdóttir með illvígan sjúkdóm. Það lés mér anda í brjóst að fylgjast með hetjulegri baráttu hennar, því æðruleysi og lifsvilja sem kristallaðist í einlægum bloggfærslum hennar og fræið sem pabbi hafði sáð tók að vaxa á ný. Ég tók upp demo og gaf Lóu henni til stuðnings en hún lést nokkrum mánuðum síðar, aðeins tvítug að aldri. Eftir stendur þetta lag um vonina sem fer um heiminn að lina þrautir mannanna.
Hlusta á diskinn í heild á:
Spotify: https://open.spotify.com/album/67VGMrKWyB7OLSBXJTFh9n?si=1ho2BRIdTGu8BtWNthqNHg
Tónlist.is:
https://www.tonlist.is/#album/2463536